Sigur gegn FSu í Síkinu

Meistaraflokkur Tindastóls sigraði FSu í Lengjubikarnum í Síkinu í gærkvöldi. Ljósm./Hjalti Árna
Meistaraflokkur Tindastóls sigraði FSu í Lengjubikarnum í Síkinu í gærkvöldi. Ljósm./Hjalti Árna

Meistaraflokkur Tindastóls tók á móti FSu í Síkinu í gærkvöldi. Samkvæmt frétt Körfunnar.is var leikurinn sveiflukenndur en endaði með tíu stiga sigri heimamanna, 96-86. Tindastóll hefur því sigrað tvo fyrstu leiki sína í Lengjubikarnum.  

Í frétt Körfunnar.is segir að heimamenn hafi byrjað sterkt og að fljótlega hafi staðan orðið 13-2. „Gestirnir tóku leikhlé og komu gríðarsterkir tilbaka eftir það og náðu 17-2 kafla og heimamenn virtust ráðalausir.  Cristopher Caird fór hamförum fyrir gestina, skoraði og stal boltanum hinumegin.  Arnþór og Lewis sáu þó til þess að Tindastóll leiddi eftir fyrsta fjórðung 29-25.

Tindastólsmenn voru svo sterkari í 2. fjórðung og Flake og Helgi Margeirs komu inn með stórar körfur.  Staðan 52-39 í hálfleik og staðan vænleg hjá heimamönnum.  Tindastóll átti svo fyrstu 5 stigin í seinni hálfleik og allt í einu var staðan orðin 57-39 og eftir það átti sigurinn að vera formsatriði.  Gestirnir sýndu þó mikla þrautseigu og enn var það Cristopher Caird sem hélt þeim inni í leiknum.  Hann átti stórleik í kvöld með 29 stig og 10 fráköst.  FSu náði að minnka muninn í 5 stig í lokin en Pálmi Geir og Lewis kláruðu leikinn fyrir heimamenn og skoruðu síðustu 5 stigin.“

Þjálfarinn Pieti Poikola nokkuð ánægður í leikslok, samkvæmt fréttinni, og sagði þetta hafa verið dæmigerðan pre-season leik og ekki margt komið á óvart; haustbragur hafi verið á leiknum og mikil hreyfing á liðum. Þá sérstaklega Tindastól þar sem nýr þjálfari var greinilega að prófa margt og reyna að kynnast leikmönnum.  

Hjalti Árna myndaði leikinn og má skoða myndasafnið á Karfan.is. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir