Sameining Húnabyggðar og Skagabyggðar formlega staðfest

Innviðaráðuneytið hefur formlega staðfest sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar og tekur sameiningin gildi 1. ágúst 2024. Tekur sveitarstjórn Húnabyggðar við stjórn hins sam­einaða sveitarfélags samdægurs og fer með stjórn þess til loka yfirstandandi kjörtímabils.

Heiti hins sameinaða sveitarfélags skal vera Húnabyggð og mun samþykkt um stjórn og fundarsköp Húna­byggðar nr. 1181/2022, gilda fyrir hið sameinaða sveitarfélag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir