Sækist eftir fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Ásbjörn Óttarsson, hefur ákveðið að sækjast eftir 1 -2 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.  Ásbjörn er forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar og útgerðarmaður.

Ásbjörn hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum, hefur setið í bæjarstjórn Snæfellsbæjar frá árinu1994, þar af sem forseti bæjarstjórnar frá árinu 1998, einnig hefur hann gegnt  mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi og Sjálfstæðisflokkinn  síðastliðin 30 ár.

Ásbjörn telur afar mikilvægt að á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi veljist fólk með víðtæka reynslu.

Hann er 46 ára gamall, fæddur og uppalinn á Hellissandi en er búsettur á Rifi. Hann  lauk skipstjórnarnámi  frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1983 og hefur allan sinn starfsaldur starfað sem sjómaður og útgerðarmaður.

Maki Ásbjarnar er Margrét G. Scheving og eiga þau þrjá syni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir