Rekstaraðili óskast

Menningarhúsið Miðgarður í Varmahlíð í Skagafirði auglýsir eftir rekstraraðila fyrir húsið. Rekstraraðila Menningarhússins Miðgarðs er ætlað að sjá um daglega starfssemi í húsinu, veitingasölu, útleigu, ræstingar og minniháttar viðhald.

Meginhlutverk Menningarhússins Miðgarðs er að vera vettvangur tónlistar. Lögð er áhersla á fjölbreytta og metnaðarfulla tónlistardagskrá. Jafnframt verði húsið æfingaaðstaða fyrir tónlistariðkendur í Skagafirði.

Í Menningarhúsinu Miðgarði verður Stefáns Íslandi sérstaklega minnst með sýningu og munum er tengjast ævistarfi hans.

Menningarhúsið Miðgarður verður jafnframt markaðssett sem aðstaða fyrir ráðstefnur, fundi, skemmtanir og ýmsa aðra menningarviðburði, svo fremi sem þeir falla að nýtingarstefnu eigenda hússins og starfssemin sé í fullu samræmi við gildandi lög og reglur um skemmtanahald

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir