Pétur Rúnar Birgisson er íþróttamaður Tindastóls 2016

Pétur Rúnar Birgisson íþróttamaður Tindastóls. Mynd: tindastoll.is
Pétur Rúnar Birgisson íþróttamaður Tindastóls. Mynd: tindastoll.is

Í gærkvöldi fór fram val á íþróttamanni Tindastóls fyrir árið 2016. Sex frambærilegir íþróttamenn höfðu verið tilnefndir en sá sem helst þótti skara fram úr á árinu er körfuboltasnillingurinn Pétur Rúnar Birgisson. Á heimasíðu Tindastóls segir að Pétur hafi átt frábært ár sem körfuknattleiksmaður og sé orðinn einn af bestu körfuknattleiksmönnum landsins þrátt fyrir ungan aldur.

„Pétur hefur undanfarin þrjú keppnistímabil stýrt liði Tindastóls sem leikstjórnandi í ungling-, drengja og meistaraflokki Tindastóls og staðið sig frábærlega í því hlutverki. Einnig lék Pétur stórt hlutverk með U20 ára landsliðinu á árinu þar sem liðið vann sig upp í að leika sem A þjóða. Þá á Pétur stóran þátt í því að lið Tindastóls er í efsta sæti Úrvalsdeildarinnar í körfubolta auk þess sem hann var valinn í úrvalslið Dominos deildarinnar 16. desember sl.“

Aðrir sem tilnefndir voru til íþróttamanns Tindastóls voru:

    Birna María Sigurðardóttir - Skíði

    Hrafnhildur Björnsdóttir - Knattspyrna

    Ingvi Hrannar Ómarsson - Knattspyrna

    Ísak Óli Traustason - Frjálsar

    Viktor Darri Magnússon - Júdó

Sjá nánar á Tindastóll.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir