Pétur Jóhann á Hvammstanga á morgun, 7. júní, í Félagsheimilinu
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
06.06.2024
kl. 08.25
Pétur Jóhann er á léttum rúnti um landið til að græta landann úr hlátri og er næsta stopp á Hvammstanga föstudaginn 7. júní í Félagsheimilinu. Herlegheitin byrja kl. 21:00 og í þetta skiptið verður Pétur með splunkunýtt efni þar sem hann fer um víðan völl og lætur gamminn geysa. Einnig má gera ráð fyrir að kötturinn, Gunnþór og fleiri snillingar líti við.
Ef þér finnst gaman að hlæja og skemmta þér konunglega þá er þetta málið. Miðinn kostar 6.500 kr. við innganginn. 16 ára aldurstakmark. Drengirnir í Pílufélagi Hvammstang verða með fljótandi veitingar í boði á uppistandinu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.