Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino á tónleikum í Apótekarastofunni

Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino koma fram á tónleikum í Apótekarastofunni, Aðalgötu 8, í Gamla bænum á Blönduósi miðvikudaginn 21. júní kl. 21:00. Í tilefni af útkoma þriðju sólóplötu Ife Tolentino leggur hann ásamt Óskari Guðjónssyni land undir fót í lok júní.

Á dagskránni eru frumsamin lög af plötunum ásamt minna þekktum klassískum meistaraverkum síðustu aldar í nýjum búningi. Dúóið hefur leikið saman í 24 ár, en þeir kynntust þegar Óskar bjó í London og leitaði uppi besta túlkanda brasilískrar tónlistar til að nema af. Við fyrstu kynni varð til mjög sterk tenging við tónlistina og vinátta sem einungis hefur dýpkað. Geta þeirra til að skilja tilfinningu hvors annars fyrir tónlistinni er ein aðalástæða farsæls samstarfs. Það ríkir nátturuleg mannleg gleði inn í braselísku sönglögunum og þar dvelja Ife og Óskar á tónleikum sínum.
/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir