Orkusetur Orkustofnunar auglýsir eftir styrkumsóknum

Athygli er vakin á styrkjamöguleika til kaupa á sólarsellum hjá Orkusetri Orkustofnunar. Um samkeppnissjóð er að ræða, við val á umsóknum er horft til verkefna þar sem notkun og framleiðslugeta fara hvað best saman. Styrkurinn nemur aldrei meira en 50% af efniskostnaði.

Í forgangi við úthlutun styrkja eru:

  • Notendur utan samveitna
  • Notendur á dreifbýlistaxta
  • Notendur á rafhituðu svæði

Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2024.

Sótt er um styrki í gegnum þjónustugátt Orkustofnunar.

Nánari upplýsingar og úthlutunarreglur er að finna á vef Orkuseturs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir