Opin golfkennsla á Hlíðarendavelli nk. sunnudag - komdu og prófaðu!

Næstkomandi sunnudag, 11. ágúst, verður opin golfkennsla á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki frá kl 12:00-14:00. PGA golfkennaranemar frá Norðurlandi munu sjá um kennsluna og verður í boði bæði púttkennsla á æfingagríni og sveiflukennslu á æfingasvæðinu.

Allir þeir sem hafa áhuga á golfi eru velkomnir og er kennslan þátttakendum að kostnaðalausu og kylfur verða á staðnum. Atli Freyr Rafnsson, golfkennari, hvetur alla til þess að koma og prófa þar sem golf hentar öllum aldurshópum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir