Nýtt starf menningar- og tómstundafulltrúa Skagastrandar
Húnahornið segir frá því að sveitarfélagið Skagaströnd hafi í hyggju að búa til nýtt starf menningar- og tómstundafulltrúa samhliða skipulagsbreytingum vegna starfsemi tómstundastarfs aldraðra og félagsmiðstöðvarinnar Undirheima.
Verkefni hans væri umsjón með félagsmiðstöðinni og tómstundastarfi aldraðra, að vera tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu, vinna í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og íþróttamiðstöðvar og hafa umsjón með ungmennaráði.
Einnig hefði viðkomandi starfsmaður aðkomu að verkefni um barnvæn sveitarfélög, væri tengiliður og umsjónaraðili með verkefninu Heilsueflandi samfélag og kæmi að undirbúningi viðburða á vegum sveitarfélagsins.
Starfið var til umfjöllunar á sveitarstjórnarfundi sem fram fór í síðustu viku og þar samþykkti sveitarstjórn skipulagsbreytingarnar og fól starfandi sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.