NLM open í skotfimi lokið

Það var feiknarmikið um að vera í menningar- og íþróttalífinu á Norðurlandi vestra um nýliðna helgi. Meðal viðburða var mótið NLM open í skotfimi sem haldið var á skotsvæði Ósmann í Skagafirði.

Heppnaðist það vel og veðrið lék við keppendur og mótsgesti, þrátt fyrir stöku skúr, vindhviðu og haglél, eins og segir á fésbókarsíðu  Skotfélagsins Markviss.

Úrslit mótsins urðu eftirfarandi

B-flokkur

  1. Brynjar Þ Guðmundsson MAV
  2. Hörður Sigurðsson SÍH
  3. Helga Jóhannsdóttir SÍH

A-flokkur

  1. Grétar Mar Axelsson SA
  2. G. Bragi Magnússon SA
  3. Guðmann Jónasson MAV

Í fyrsta skipti í ár var krýndur Norðurlandsmeistari kvenna. Ekki var háð hörð barátta um titilinn þar sem að Snjólaug M Jónsdóttir MAV var eini kvenkyns keppandinn. Baráttan var hins vegar aðeins meiri í karlaflokk en fór svo að Grétar Mar Axelsson var hæstur að 5 hringjum loknum, G. Bragi Magnússon í öðru sæti og Guðmann Jónasson í þriðja sæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir