Niðurstöður rannsókna á ferðamennsku á Kili

Landnýtingaráætlun hefur það að markmiði að hálendið nýtist sem best til sem fjölbreytilegastrar útivistar og ferðamennsku án þess að gengið sé á auðlindina. Slík áætlun byggir á rannsóknum á þolmörkum ferðamennsku, annars vegar með hliðsjón af upplifun ferðamanna og hins vegar með hliðsjón af hvers konar ferðamennsku umhverfið þolir og hentar til.

“Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvers konar ferðamennska er stunduð á Kili á sumrin, hvernig ferðamenn upplifa ferðalag sitt um Kjöl og hvers konar uppbyggingu þeir telja æskilega,” segir Anna Dóra Sæþórsdóttir m.a. í inngangi, en hún stýrði rannsókninni.

Í skýrslunni Kafað ofan í kjölinn á viðhorfum ferðamanna á Kili eru birtar niðurstöður þeim hluta verkefnisins  sem snýr að upplifun ferðamanna á Kili.

Í annari skýrslu er töluleg greining á viðhorfum ferðamanna á Kili.

Í þriðju skýrslunni er síðan að finna greiningu á viðtölum við ferðamenn á Kili.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir