Nemendur Árskóla dansa af lífi og sál
feykir.is
Skagafjörður, Ljósmyndavefur, Mannlíf
09.10.2015
kl. 09.38
Dansmaraþon 10. bekkinga í Árskóla lauk um hádegisbil í gær en þá höfðu ungmennin dansað sleitulaust í 26 klukkutíma. Sérstök danssýning var í íþróttahúsinu á miðvikudag en þar dönsuðu allir nemendur Árskóla undir stjórn snillingsins Loga danskennara.
Það er óhætt að fullyrða að dansgleðin hafi skinið af hverju andliti og fylgdist fjöldi fólks með af áhorfendapöllunum og höfðu gaman að.
Hér má sjá myndband frá dansmaraþoninu.
Blaðamaður Feykis var á staðnum og tók nokkrar myndir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.