Nemanda Varmahlíðarskóla veitt verðlaun á Bessastöðum
Ása Sóley Ásgeirsdóttir, nemandi í 10. bekk Varmahlíðarskóla, hlaut verðlaun síðastliðinn laugardag fyrir verkefni Forvarnardagsins. Á vef Varmahlíðarskóla kemur fram að henni hafi verið boðið af því tilefni til síðdegisboðs á Bessastöðum, ásamt fjölskyldu og skólastjóra. Verðlaunin voru veitt fyrir að leysa netratleik en sex nemendum tókst verkið, þremur grunnskólanemendum og þremur framhaldsskólanemendum.
„Athöfnin var hin virðulegasta, Ólafur Ragnar Grímsson forseti veitti verðlaunin og sagði frá þeim góða árangri sem náðst hefur með Forvarnardeginum. Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands, í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis,“ segir á vefnum.
Frekari upplýsingar um forvarnardaginn er að finna á heimasíðu verkefnisins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.