Mikilvægi Háskólans á Hólum í samfélaginu
Háskólinn á Hólum efnir til málþings í Frímúrarahúsinu á Sauðárkróki í dag 2. apríl kl. 14 - 17. Efni málþingsins er mikilvægi Háskólans á Hólum fyrir samfélagið og atvinnulífið. Háskólar landsins leggja grunninn að uppbyggingu menntunar, menningar og atvinnumála þjóðarinnar og á það ekki síst við um háskóla á landsbyggðinni.
Framsögumenn verða sérfræðingar um háskólamál og aðilar þeirra þriggja atvinnugreina sem tengjast skólanum. Í lok framsöguerinda verða pallborðsumræður þar sem framsögumenn, fulltrúar stjórnmálaflokka og sveitarstjórna sitja fyrir svörum. Allir eru velkomnir og er dagskráin eftirfarandi:
Ávarp og setning: Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri
Fundarstjóri: Jón Óskar Pétursson framvæmdastjóri SSNV
Jón Torfi Jónasson, sviðsforseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands: Er ekki nóg að hafa háskóla í Reykjavík?
Herdís Sæmundardóttir, fræðslustjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar: Háskólinn á Hólum í samfélaginu
Jón Árnason, sérfræðingur MATÍS: Þekkingin gerir yður frjálsan
Ásbjörn Björgvinsson, framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu ferðamála Norðurlandi: Gildi menntunar fyrir ferðaþjónstuna
Sigrún Ólafsdóttir, formaður Félags tamningamanna: Gæðingur í menntun
Guðrún Helgadóttir prófessor stjórnar pallborðsumræðum með frummælendum og fulltrúum stjórnmálaflokka og sveitarstjórna
Lokaorð: Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.