Miðasala á Jólin heima er hafin

Miðasala á jólatónleikana Jólin heima er hafin, en tónleikarnir fara fram í Miðgarði laugardaginn 14. desember og hefjast kl. 21. Miðasalan fer fram á vefsíðunni Feykir.is, hlekkur á fréttasíðunni vísar í miðasölu.

Þetta er fimmta árið sem ungt tónlistarfólk í Skagafirði blæs til jólatónleika, viðtökurnar hafa verið frábærar og þau hafa fyllt Miðgarð síðastliðin ár. Fram kemur svipaður hópur af hljóðfæraleikurum og söngfólki og undanfarin ár, en flytjendur verða kynntir nánar á næstu vikum.

Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra og auk þess styrkja FISK, Tengill og KS verkefnið.

Starfsmannafélögum og fyrirtækjum er boðið að kaupa miða á afsláttarkjörum.

Almennt verð á miðum er kr. 7.990.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir