Matvælaráðherra fundar í Dalsmynni
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
26.08.2024
kl. 08.42
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra býður bændum í Austur-Húnavatnssýslu að hitta sig í kaffi og spjall í Dalsmynni í Svínadal mánudaginn 26. ágúst og hefst fundurinn kl. 14:30. Bjarkey verður á ferðalagi um Norðurland í vikunni og ætlar að heimsækja sem flestar starfsstöðvar stofnana ráðuneytisins og hitta bændur.
Bændur fá hér kjörið tækifæri til þess að ræða við ráðherrann um það sem helst brennur á þeim.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.