Málþing um torfarfinn í Kakalaskála

Glaumbær er einn þekktasti torfbær landsins og fjölsóttasti ferðamannastaður Skagafjarðar. MYND: BSK
Glaumbær er einn þekktasti torfbær landsins og fjölsóttasti ferðamannastaður Skagafjarðar. MYND: BSK

Byggðasafn Skagfirðinga stendur fyrir málþingi um torfarfinn í Kakalaskála í Skagafirði þann 8. nóvember næstkomandi, frá kl. 11–15. Þingið er tileinkað Sigríði Sigurðardóttur, Sirrí í Glaumbæ, fyrrverandi safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, í tilefni af stórafmæli hennar en hún varð sjötug á dögunum. Fjallað verður um torfarfinn frá ýmsum hliðum á málþinginu.

Torfarfurinn hefur löngum verið Sirrí hugleikinn en auk þess að koma á fót Fornverkaskólanum þá hefur hún stundað umfangsmiklar rannsóknir og miðlun á torfarfinum um áratuga skeið.

D A G S K R Á :
11:00 Setning málþings – Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður
11:10 „Hefðin sem lifir í höndunum“: Samningur UNESCO um varðveislu menningarerfða frá 2003 og lifandi handverksþekking - Sigurlaug Dagsdóttir, verkefnisstýra vefsins Lifandi hefða hjá Þjóðminjasafni Íslands
11:30 Skagfirska torfhúsarannsóknin: niðurstöður og lærdómur – Bryndís Zoëga, landfræðingur og fyrrv. verkefnastjóri hjá Byggðasafni Skagfirðinga
11:50 Torfarfurinn sem viðfangsefni stjórnsýslunnar – María Gísladóttir, arkitekt hjá Minjastofnun Íslands
12:10 Spurningar og umræður

12:20 Hádegisverður

13:00 Þrívíddarskönnun á torfi og torfverkfærum - Alex Casteel og Doug Daniels, frá UCLA háskóla í Bandaríkjunum (erindið fer fram á ensku)
13:20 PVC dúkar í torfhúsum - Helgi Sigurðsson, hleðslumeistari hjá Fornverki ehf.
13:40 Torf- og grjóthleðslur á ferðamannastöðum - Gunnar Óli Guðjónsson, landslagsarkitekt hjá Stokkum og steinum ehf.
14:00 Þarfasti þjónn húsasmiðsins, notaður við aðdrætti við húsbyggingar - Snædís Traustadóttir húsasmíðameistari
14:20 Spurningar og umræður

14:30 Kaffi, kleinur og spjall

15:00 Málþingi slitið

Fundarstjóri verður Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga. Aðgangur á málþingið er ókeypis og það opið öllum áhugasömum. Farið er fram á skráningu á heimasíðu safnsins fyrir 6. nóvember. Boðið verður upp á streymi af málþinginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir