Ljósleiðaravæðing landsins undirrituð

Fulltrúar 17 sveitarfélaga af þeim 25 sem taka þátt í verkefninu voru viðstaddir undirritunina sem fram fór í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Mynd: Sigurjón Ragnar.
Fulltrúar 17 sveitarfélaga af þeim 25 sem taka þátt í verkefninu voru viðstaddir undirritunina sem fram fór í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Mynd: Sigurjón Ragnar.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og innviðaráðherra staðfestu í gær samninga fjarskiptasjóðs við 25 sveitarfélög um að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Lengi hefur ríkt óvissa um hvort, og þá hvenær, mörg þúsund lögheimili í þéttbýli um land allt munu eiga kost á háhraðanetsambandi, sem er mikilvægt öryggismál og undirstaða nútíma búsetugæða. Með þessum samningum er sú óvissa ekki lengur fyrir hendi.

Húnabyggð, Húnaþing vestra og Skagafjörður eru í hópi þeirra sveitarfélaga sem fá nú stuðning til að ljúka ljósleiðaravæðingu.

Greint var frá því í sumar að háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hafi, í samstarfi við innviðaráðherra, ákveðið að flýta fyrirhugaðri ljósleiðaravæðingu landsins um tvö ár. Opinbert markmið stjórnvalda um aðgengi að ljósleiðara hafði fram að því verið að allir þéttbýlisstaðir og byggðakjarnar á landinu næðu a.m.k. 80% hlutfalli tengdra lögheimila fyrir árslok 2028. Nýju áformunum sem kynnt voru 2. júlí sl. var aftur á móti ætlað að stuðla að 100% aðgengi fyrir árslok 2026, á grundvelli samvinnu íbúa, sveitarfélaga, fjarskiptafyrirtækja og ríkisins.

Fjarskiptastofa kannaði í vor áform fjarskiptafyrirtækja og opinberra aðila um uppbyggingu á ljósleiðara í öllu þéttbýli árin 2024 til 2026. Könnunin leiddi í ljós að slík áform náðu ekki til 4.438 heimilisfanga í 48 sveitarfélögum. Fjarskiptasjóður gerði sveitarfélögunum því tilboð um 80.000 kr. styrk til að kosta jarðvinnu við að tengja hvert slíkt heimilisfang fyrir árslok 2026. Samþykkt tilboð ná til 4.251 heimilisfangs sem jafngildir um 96% þátttöku sem er umfram væntingar. Fjöldi heimilisfanga í Húnaþingi vestra sem falla undir stuðninginn eru um 90. Með tengingu þeirra verður ljósleiðaravæðingu sveitarfélagsins lokið.

Heildarskuldbinding ríkisins vegna þessa lokaátaks í ljósleiðaravæðingu landsins er um 340 milljónir króna gangi öll uppbyggingin eftir. Fjarskiptasjóður er ábyrgðar- og framkvæmdaraðili verkefnisins fyrir hönd ríkisins og greiðandi styrksins, en til stendur að leggja niður sjóðinn um áramót enda hefur hann uppfyllt hlutverk sitt. Verkefnið er einnig fjármagnað með framlagi af byggðaáætlun, líkt og verið hefur síðan árið 2017.

Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar, og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, undirrituðu samninginn fyrir hönd sinna sveitarfélaga. Í Húnaþingi vestra er um að ræða tengingar heimila í þéttbýli á Laugarbakka og Hvammstanga en nokkuð er síðan lokið var við tengingar í dreifbýli í sveitarfélaginu. Samkvæmt upplýsingum Feykis er búið að ljósleiðaravæða í dreifbýli í Skagafirði en ekki fullklárað á þéttbýlisstöðunum. Stærsti þátturinn mun vera gamli bærinn á Sauðárkróki.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir