Ljósin tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi í dag
Í dag, laugardaginn 28. nóvember, verður kveikt á jólatrénu á Kirkjutorgi við hátíðlega athöfn. Dagskráin hefst kl 15:30 en hún er fjölbreytt að vanda. Nemendur Grunnskólans austan Vatna taka lagið og einnig barnakór Sauðárkrókskirkju og Árskóla. Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri flytur ávarp og jólasveinarnir koma í heimsókn. Að venju er jólatréð gjöf frá Kongsberg, vinabæ Skagafjarðar í Noregi.
Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að mikið verður um að vera um helgina og mikil aðventustemming í gamla bænum á Króknum. Opið verður í fyrirtækjum og verslunum og ýmislegt gott á boðstólum, m.a. súkkulaði, kjötsúpa og piparkökur og ýmis tilboð í gangi. Einnig er hægt að bregða sér í Varmahlíð og skoða handverk í Gallerí Alþýðulist.
Óhætt er að fullyrða að helgin hafi byrjað vel fyrir Skagfirðinga. Skagfirðingarnir Ellert og Sigvaldi flugu í gegnum The Voice Ísland og eru komnir í úrslitin sem verða í lokaþættinum í næstu viku. Í hádeginu í dag buðu félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks til Jólahlaðborðs í íþróttahúsinu á Sauðárkróki með hjálp velunnara og þar var ljómandi stemning og fjölmenni.
Aðventan byrjar á sunnudaginn og eru aðventuhátíðir í Rípurkirkju, Hóladómkirkju og Sauðárkrókskirkju.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.