Lífið er núna dagurinn er á morgun
Í tilefni af Vitundarvakningu Krafts verður Lífið er núna dagurinn haldinn hátíðlega fimmtudaginn 30. janúar. „Þennan dag hvetjum við almenning og fyrirtæki í landinu til að halda hátíðlegan Lífið er núna daginn en tilgangur hans er að minna fólk á að staldra við og njóta líðandi stundar“, segir Þórunn Hilda Jónasdóttir, viðburða- og þjónustustjóri Krafts.
Við hvetjum vinnustaði til að brjóta upp hversdagsleikann með því t.d. að bjóða upp á appelsínugular veitingar og þær byggingar sem hafa tök á verða lýstar upp með appelsínugulri lýsingu sem er litur Krafts. Fólk getur klæðst appelsínugulu eða mætt í sínu fínasta pússi í vinnuna, tilvalið er að draga fram sparistellið, byrja lífsstílsbreytinguna, hringja í gamlan vin eða bara baka uppáhaldskökuna þó svo það sé ekki veisla framundan.
Fram kemur í tikynningu frá Krafti í tilefni af Lífið er núna deginum, að boðið verður upp á létta pop-up tónleika með söngkonunni Rakel Sigurðardóttur í verslun Rammagerðarinnar á Laugavegi 31, fimmtudaginn 30. Janúar, kl.17:30 – 18:00. „Rakel er stórkostleg söngkona sem söng lagið Ég á lítinn skrítinn skugga, eftir Gunnar Þórðarson við texta Sigurðar Júlíusar Jóhannessonar, í nýrri útgáfu og heyrist í auglýsingu Krafts sem er hluti af vitundarvakningu okkar í ár.“
Stuðningsfélagið Kraftur var stofnað 1. október 1999 og hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Félagið var stofnað af fólki sem fannst vanta stuðning og fræðslu fyrir fólk sem væri að greinast með krabbamein á yngri árum. Félagið er fyrir fólk á aldrinum 18 – 40 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur á öllum aldri alveg frá 18 ára og upp úr.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.