Laust starf safnvarðar á Byggðasafni Húnvetninga og strandamanna
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf
25.01.2016
kl. 09.02
Húnaþing vestra auglýsir laust til umsóknar starf safnvarðar á Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna. Um er að ræða fullt starf. Safnvörður ber ábyrgð á daglegu starfi byggðasafnsins, m.a. safnkennslu, skráningu, miðlun og kynningarmálum.
Hæfniskröfur eru:
- Háskólapróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Þekking á safnastarfi.
- Góð samstarfshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni.
- Mjög góð íslensku og enskukunnátta.
Miðað er við að nýr safnvörður hefji störf þann 1. mars næstkomandi. Búseta í Húnaþingi vestra er mjög æskileg. Upplýsingar um starfið gefur Sólveig H. Benjamínsdóttir, forstöðumaður safna, og umsóknir skulu sendar til hennar í pósti eða á netfangið solveig@hunathing.is.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Möguleiki er að leigja íbúð á staðnum.
Heimild: Sjónaukinn
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.