Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska leikmanninn Jacob Callowa

Jacob Calloway. Mynd tekin af Facebook-síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
Jacob Calloway. Mynd tekin af Facebook-síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
Á Facebook-síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að deildin sé búin að semja við bandaríska leikmanninn Jacob Callowa. Jabob er framherji og 203 cm á hæð og kemur frá liði KB Peja í Kósovó þar sem hann var með rétt tæp 15 stig í leik í deildinni þar og í evrópukeppninni. Jacob er þó flestu Tindastólsfólki kunnugur frá tíma sínum í Val tímabilð 21-22 þar sem Valsmenn tryggðu sér titilinn í lokaseríu gegn Tindastól.
 
Pavel þekkir vel til Jacobs en þeir voru einmitt liðsfélagar hjá Val: “ Við sýndum góða og þarfa þolinmæði við leit að leikamanni sem passar inn í hópinn okkar. Jacob kom óvænt á borðið á síðustu dögum og ég vissi strax að þetta væri maðurinn. Hann er fjölhæfur leikmaður sem verður lítið mál að púsla inn. Einnig er þetta topp drengur og það skiptir mig máli. Það gleður mig mjög að liðið okkar er núna allt skipað leikmönnum sem ég sjálfur myndi vilja hafa við hlið mér inn á vellinum.”
 
Jacob segist spenntur fyrir að vera orðinn hluti af Tindastólsliðinu: “ Ég á frábærar minningar frá tíma mínum á Íslandi og Tindastólsserían var einstök. Orkan í stuðningsfólki Tindastóls var svakaleg og ég hlakka til að hafa hana með mér í liði. Ekki skemmir fyrir að það eru kunnuleg andlit í liðinu og það mun eflaust hjálpa mér að aðlagast hratt," segir Jacob. 
 
Körfuknattleiksdeild Tindastóls býður Jacob Calloway velkominn í Tindastól.
Áfram Tindastóll!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir