Kaupfélag Vestur Húnvetninga 100 ára

Í tilefni af 100 ára afmæli Kaupfélags Vestur-Húnvetninga mun félagið á morgun föstuadg  bjóða viðskiptavinum sínum og velunnurum til veislu í Félagsheimilinu á Hvammstang.
 Boðið verður uppá veglega kökuveislu, ásamt því að Lóuþrælarnir og Kvæðamannafélagið Vatnsnesingur ætla að heiðra afmælisbarnið með nærveru sinni.
Til tilkynningu frá félaginu eru ungir sem aldnir hvattir til þess að  koma og gæða sér á kræsingunum og halda uppá aldarafmæli Kaupfélagsins.
 Dagskráin hefst kl. 16:00 og stendur til 18:00. Húsið opnar kl. 15:30.

Í tilkynningu frá Kaupfélaginu segir; -Það er ekki á hverjum degi að fyrirtæki nái þeim merka áfanga að verða aldargamalt. Viðskiptavinir Kaupfélagsins í gegnum tíðina eiga miklar þakkir skildar fyrir að þessum merka áfanga er náð. Tryggð viðskiptavina okkar við félagið og umfang daglegrar verslunar í heimabyggð eru helstu ástæður þess að fyrirtækið hefur dafnað vel þennan tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir