Kaffihlaðborð í Hamarsbúð á Vatnsnesi um helgina
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf
02.08.2024
kl. 23.05
Húsfreyjur á Vatnsnesi láta hendur standa fram úr ermum og skella í gómsætt og fjölbreytt kaffihlaðborð í Hamarsbúð um verslunarmannahelgina. Þeir sem hyggjast gera vel við bragðlauka sína geta gefið þeim lausan tauminn laugardaginn 3. ágúst og sunnudaginn 4. ágúst en tekið verður á móti gestum á milli kl. 13 og 17 báða dagana.
Verð kr. 3.000 fyrir 13 ára og eldri, en kr. 1.000 fyrir 6-12 ára. Akríl- og vatnslitamyndir Kristínar og Jóhönnu Jósefsdætra verða til sýnis og sölu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.