Íslenska Gámafélagið með lægsta boð í sorphirðu í Skagafirði
Fjögur tilboð bárust í verkið „Sorphirða fyrir heimili, stofnanir, gámastöðvar o.fl. í Skagafirði 2023-2028“ en tilboð voru opnuð í lok september. Íslenska Gámafélagið ehf var með lægsta boð eða upp á 115,9% af kostnaðaráætlun. Einnig komu tilboð frá Kubbur ehf upp á 137%, Terra Umhverfisþjónusta 187,5% og GS Lausnir 212,5% af áætlun.
Í frétt á vef Skagafjarðar segir að á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar Skagafjarðar þann 19. október sl. hafi verið lagt til að gengið yrði til samninga við lægstbjóðenda, Íslenska Gámafélagið ehf., með fyrirvara um að samningar náist og málinu vísað til ákvörðunar byggðarráðs.
„Með tilkomu nýrra laga um sorphirðu sem taka gildi um næstu áramót er kveðið á um að sveitarfélögum sé óheimilt að niðurgreiða kostnað vegna sorphirðu. Í dag er sveitarfélagið að niðurgreiða sorphirðu í Skagafirði og því ljóst að verulegar hækkanir verða á gjaldskrá sorphirðu um áramótin. Áætlað er að endurskoða gjaldskrá aftur 1. apríl 2023, en þá tekur væntanlega við nýr samningur um rekstur sorphirðu í Skagafirði,“ segir í fréttinni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.