Íslandsmeistaramót í hrútadómum og Þuklaraball

Það verður sannkölluð stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum laugardaginn 14. ágúst kl. 14:00 og gott tækifæri fyrir alla Húnvetninga og Skagfirðinga að renna á Strandirnar og sletta aðeins úr klaufunum.

Þá verður haldið í áttunda sinn Íslandsmeistaramót í Hrútadómum – venjulega kallað hrútaþukl - en þessi íþróttagrein hefur smám saman náð almennri hylli landans síðan Sauðfjársetrið hóf að halda mótið árið 2003. Um kvöldið verður síðan haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni. Nóg verður um að vera; ókeypis verður inn á safnið og sýningu þess, Strandahestar bjóða upp á hestaferðir, ljúffengt kaffihlaðborð verður í boði í Kaffi Kind, skemmtiferðir verða farnar í dráttarvélavagni og leiktæki verða staðsett á íþróttavellinum. Reyndir og óreyndir þuklarar hvaðanæva að af landinu eru boðnir innilega velkomnir á þessa miklu hátíð.

Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og æðsti sauðfjárspekúlant Íslands fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja. Afar veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum – t.d. hafa þrír efstu í vana flokknum undanfarin ár fengið meðal annars nokkra skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands!

Um kvöldið verður síðan hægt að kíkja á veglegt matarhlaðborð á Café Riis á Hólmavík milli kl. 18:00 og 21:00 og smella sér síðan á Þuklaraballið svonefnda sem fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík, en þar spilar skagfirski sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson ásamt hljómsveit sinni fyrir dansi. Aðgangseyrir að dansleiknum er aðeins kr. 2.500, en ekkert kostar inn á hrútaþuklið né að taka þátt í því. Það er því tilvalið fyrir stóra sem smáa að gera sér ferð á Strandir á næstu helgi til að taka þátt í einhverri óvenjulegustu íþróttagrein heims.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir