Ísak ekki með næsta vetur

Karfan.is segir frá því að Tindastólsmenn verða fyrir mikilli blóðtöku í körfunni næsta vetur en einn besti leikmaður okkar í vetur, Ísak Einarsson, mun ekki leika með liðinu. Í samtali við karfan.is sagði Ísak að kona hans væri að fara í framhaldsnám í Noregi og hann myndi fylgja með og fara að vinna þar.

Aðspurður um hvort hann tæki skóna með til Noregs sagði Ísak að það væri ekki á stefnuskránni „en maður veit aldrei“ sagði hann svo að lokum.

Ísak hóf ferilinn með Tindastól en hefur einnig leikið með Breiðablik í Úrvalsdeild auk þess sem hann lék um tíma með Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni. Hann hefur alls leikið 166 leiki í Úrvalsdeild á Íslandi og skoraði að meðaltali 7,5 stig en í þeirri dönsku lék hann 22 leiki og skoraði 10,3 stig að meðaltali í leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir