Íbúakönnun meðal búfjáreigenda um söfnun dýrahræja

MYND SKAGAFJÖRÐUR
MYND SKAGAFJÖRÐUR

Á fundi Landbúnaðar- og innviðanefndar þann 28. nóvember sl., var samþykkt að gera rafræna netkönnun meðal búfjáreigenda í Skagafirði um þá möguleika sem kynntir voru í söfnun dýrahræja og sláturúrgangs á opnum fundi í Ljósheimum. Niðurstöður könnunarinnar verða hafðar til hliðsjónar við ákvarðanatöku um hvaða leið verður valin, en ráðgert er að ákvörðun um það verði tekinn strax í upphafi nýs árs.

Allir búfjáreigendur sem eru skráðir greiðendur eða skráðir forsvarsaðilar þeirra félaga sem reka bú og eiga búfé á kennitölu félagsins hafa rétt og möguleika til að taka þátt í könnuninni.

Slóðin á könnunina er: https://skagafjordur.is/ibuakosningar

Sveitafélagið Skagafjörður skorar á alla sem rétt eiga að taka þátt í könnuninni en henni líkur 20. desember nk.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir