Hugum að auðlindinni okkar – stillum kerfin og drögum úr sóun

RARIK býður viðskiptavinum hitaveitunnar á Blönduósi og Skagaströnd að fá til sín fagmann til að yfirfara hitakerfi í híbýlum sínum, sér að kostnaðarlausu.

Með þessu vill RARIK hvetja viðskiptavini hitaveitunnar til að huga að þessari auðlind samfélagsins og taka þátt í að lágmarka sóun á heita vatninu. Með því að yfirfara og stilla hitakerfið er komið í veg fyrir að vatnið fari óþarflega heitt frá hitakerfinu í fráveitu. Það lækkar hitaveitureikninginn, dregur úr sóun og varðveitir vatnsbúskap auðlindarinnar betur.

Þau sem hafa áhuga á að fá fagmann til að yfirfara hitaveitukerfið sitt er bent á að hafa samband við Guðmann Valdimarsson í síma 528 9000 eða með tölvupósti á netfangið gudmvald@rarik.is. Athugið að fagmaðurinn skoðar hvort vatnið fari heitara í fráveitu en þörf er á og stillir kerfið eftir þörfum. Fagmaðurinn mun ekki ráðast í viðgerðir eða útskiptingu á búnaði á kostnað RARIK.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir