Hrekkjavaka í Glaumbæ

Það verður hryllilega gaman í Glaumbæ laugardaginn 29. október frá kl. 18-21! Sýningarnar í gamla bænum taka á sig skuggalega mynd og Miklabæjar-Sólveig og fleiri fara á stjá.

Líkt og oft áður verður sögustund í baðstofunni nema að þessu sinni verða draugasögur og fróðleikur um gömul hindurvitni og uppruni hrekkjavökunnar til umfjöllunar. 
Í Áshúsi verður vinnustofa fyrir yngri kynslóðina þar sem hægt verður að skera út grasker og rófur. Einnig verður mögulegt að kaupa léttar veitingar.

Börn 12 ára og yngri skulu vera í fylgd með fullorðnum og það gæti verið betra fyrir viðkvæmar sálir á öllum aldri að hafa fylgdarfólk sér til halds og trausts. Aðgangur er ókeypis fyrir börn undir 18 ára aldri og grímuklædda fullorðna.

Við minnum á ársmiðana þar sem íbúar héraðsins þurfa einungis að greiða aðgangseyri einu sinni (1.700 kr. almennt verð en 1.500 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn) og fá þá miða sem gildir í heilt ár frá kaupum og geta í kjölfarið komið hvenær sem er og eins oft og þeir vilja þeim að kostnaðarlausu.
/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir