Gunnar Bragi sækist eftir fyrsta sæti

Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti framsóknarmanna í Skagafirði, sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu þar sem hann sækist eftir fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Yfirlýsing Gunnars Braga; -Íslenskt samfélag gengur nú í gengum mikla erfiðleika. Mestu skiptir að endurreisa efnahag þjóðarinnar, tryggja hag heimilanna og slá skjaldborg um undirstöðuatvinnuvegina, sjávarútveg og landbúnað eins og við framsóknarmenn samþykktum á nýliðnu flokksþingi okkar.

 

Jafnframt legg ég áherslu á að náttúruauðlindir landsins verði nýttar á skynsamlegan hátt til að eflingar og uppbyggingar atvinnulífs.

 

Framsóknarflokkurinn stendur á tímamótum þar sem hann hefur orðið við kröfu flokksmanna og þjóðarinnar um endurnýjun. Mikilvægt er að til starfa með nýrri forystu veljist aðilar er þekkja kröfur og þarfir umbjóðenda sinna og eru trúir grunngildum og stefnu flokksins.

 

Ég hef, frá því að ég hafði aldur til, tekið virkan þátt í starfi Framsóknarflokksins. Í þeim störfum hef ég lagt áherslu á grunngildi og rætur flokksins sem hafa í gegnum tíðina gert hann að einum áhrifamesta stjórnmálaflokki landsins. Eftir þessu gildum er nú kallað. Ég vil leggja mitt að mörkum við að vinna að framgangi þessara gilda.

 

Ég hef því ákveðið að bjóða mig fam til að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í næstu alþingiskosningum. .

 

Í Norðvesturkjördæmi er mikið af hæfu fólki sem unnið hefur af heilindum árum sama að uppbyggingu Framsóknarflokksins og framgangi hans. Ég hef starfað með mörgu af þessu góða fólki og tel mig þekkja vel til flokksins og grasrótar hans. Ég fagna því fólki úr grasrótinni sem hyggst bjóða sig fram og hlakka til samkeppni og samstarfs við það og vona að flokksmenn virði það starf sem allt þetta fólk hefur innt af hendi.

 

Gunnar Bragi Sveinsson

Oddviti Framsóknarflokks í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir