Gula viðvörunin nær aðeins fram á morgundaginn

Veðurspáin fyrir Norðurland vestra kl. 20 í kvöld. SKJÁSKOT
Veðurspáin fyrir Norðurland vestra kl. 20 í kvöld. SKJÁSKOT

Í gærmorgun var gul veðurviðvörun fyrir allt landið um helgina en eitthvað hefur útlitið breyst. komin appelsínugul viðvörun á sumum landsvæðum í dag og fram yfir hádegi á morgun. Það er helst Breiðafjörðurinn sem fær þennan skell en í dag verður einnig bálhvasst á miðhálendinu og suðausturlandi. Gul viðvörun tekur gildi á Norðurlandi vestra kl. 16 í dag og stendur til kl. fimm í nótt – annars er helgin litlaus á svæðinu þegar kemur að viðvörunum.

„Suðaustan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Úrkomulítið, en hláka. Varasöm akstursskilyrði vegna vinds og einnig hálku þar sem blaut svell eru á vegum,“ segir í spá Veðurstofunnar.

Veðurspár sveiflast talsvert fyrir helgina en væntanlega verður veðrið hvað verst hjá okkur frá því seinni partinn í dag og fram yfir hádegi á morgun, laugardag. Þannig er gert ráð fyrir 25 m/sek við Blönduós í kvöld þegar Gísli Marteinn er að hneppa að sér jakkanum í sjónvarpssal. Á sama tíma er spáð sama vindstyrk á Holtavörðu- og Öxnadalsheiði þannig að þá er betra að fara að öllu með gát, enda hálka á flestum vegum í umdæminu.

Í Skagafirði er spáð hvað hvössustu um fimm til sex í nótt, eða 25 m/sek að sunnan, en þá verður hitinn um tíu gráður. Það hægist á vindinum upp úr hádegi á morgun en hvessir á ný um miðnætti annað kvöld. Útlit er fyrir skaplegt veður á sunnudaginn á Norðurlandi vestra og þá er ekki gert ráð fyrir úrkomu á svæðinu nema mögulega í Vestur-Húnavatnssýslu um helgina.

Það stefnir síðan í umhleypingaveður frá helgi og fram í miðja viku; vindurinn sjaldnast undir 10 m/sek og ýmist snjókoma, slydda eða rigning. Eiginlega bara tóm drulla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir