Gul veðurviðvörun yfir alla helgina
Það er boðið upp á gula veðurviðvörun á Vestur-, Suðvesturlandi og miðhálendinu í dag. Norðurland vestra virðist sleppa nokkuð vel en þó gæti hvesst nokkuð í Húnavatnssýslunum. Gengur í suðaustan 13-18 m/s með snjókomu eða slyddu öðru hvoru, segir í veðurspá Veðurstofunnar fyrir daginn í dag, en snýst í suðvestan 8-13 með stöku éljum í kvöld. Hiti kringum frostmark. Suðaustan 18-25 og dálítil rigning á morgun en hiti 3 til 10 stig.
Um helgina hefur Veðurstofan skellt gulri veðurviðvörun á allt landið frá kl. 17 á föstudegi og fram að miðnætti á sunnudagskvöldi. Verst virðist veðrið ætla að verða hér á Norðurlandi vestra á föstudagskvöldið og verður hvassviðri fram á miðjan dag á laugardaginn en þá er reiknað með að vindur gangi nokkuð niður.
Á laugardagsmorgni er gert ráð fyrir allt að tíu stiga hita en það kólnar þegar líður á helgina, hiti í kringum frostmark á sunnudegi og mánudegi en þá er spáð slyddu eða snjókomu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.