Grétar Freyr vann sjöunda Hard Wok mótið

Grétar Freyr með vinninginn og skorkortið sitt.
Grétar Freyr með vinninginn og skorkortið sitt.

Sjöunda Hard Wok háforgjafarmót sumarsins fór fram í gær þar sem 17 kylfingar tóku þátt. Veðrið var frábært og ágætis skor. Sigurvegari mótsins, annað skiptið í röð því hann vann einnig sjötta Hard Wok mótið, var Grétar Freyr Pétursson með 27 punkta.

Grétar setti einnig sitt persónulega vallarmet þegar hann fór  hringinn á 43 höggum. Frábær árangur hjá þessum flotta dreng. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir