Gjöf allra landsmanna mætt á Skagaströnd
Á heimasíðu Skagastrandar segir að bókin Fjallkonan, þú ert móðir vor kær, bíði íbúa að Túnbraut 1-3 á Skagaströnd. Í tilefni af því að Íslenska lýðveldið var stofnað á Þingvöllum þann 17. júní 1944 og fagnar því 80 ára afmæli á árinu ákvað forsætisráðuneytið, í samvinnu við Forlagið, að gefa út bókina Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, sem verður gjöf til landsmanna og dreift um allt land fyrir 17. júní.
Fjallkonan er þjóðartákn og í bókinni er kafað ofan í sögu hennar og tilurð sem þjóðartákns og ávörpin sem flutt hafa verið af íslenskri fjallkonu allt frá árinu 1947, ásamt úrvali þjóðhátíðarljóða. Í bókinni eru m.a. þýðingar á ensku og pólsku.
Íbúar Skagastrandar eru hvattir til að skunda í góða veðrinu að Túnbraut 1-3 og sækja sér eintak.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.