Gæs að hætti kennarans
Jóna Hjaltadóttir, kennari, og Arnar Halldórsson, verkefnastjóri Gagnaveitu Skagafjarðar, voru gestgjafar vikunnar í mars 2007. Þau hjón buðu upp á þurrkryddaða gæs ásamt steiktu grænmeti og „Sigurlaugar“ köku. Jóna og Arnar skoruðu á vin sinn og kórfélaga Arnars, Gunnar Sandholt, að koma með næstu uppskrift.
Aðalréttur
Þurrkrydduð gæs
Gæs úrbeinuð, bringum og leggjum velt upp úr krydd-blöndu og látið standa í 2-4 tíma.
Kryddblanda – nóg til að þekja bringurnar og leggina.
- - Season All
- - Lemon&Herb seasoning frá McCormick
- - Herbamare Original frá A.Vogel (Hafsalt með kryddjurtum)
- - Nýmulinn svartur pipar
- 1 ½ – 2 lítrar vatn settir í steikarpott ásamt eftirfarandi;
- - sveskjur ca. 20 stk.
- - 1 stk laukur saxaður
- - 1 epli í bitum
- - 4 msk. púðursykur
Allt látið malla í heitum ofninum við 225 – 250 °c. Leggir steiktir / lokaðir á pönnu, lagðir í steikarpottinn og látnir malla í vel heitum ofni í 20 mín. Þá eru bringurnar snöggsteiktar á pönnu og settar út í pottinn og allt látið malla saman í 30 – 45 mín.
Sósa:
Innmatur gæsarinnar soðinn saman í potti í 45 – 60 mín. saltað. Soðið síað frá og sett í pott ásamt soði af bringum og leggjum – svona mest allt. Suðan látin koma upp og bætt út í; ½ dós mysing, 4 msk. rifsberjasultu og rjóma ef vill. Sósan þykkt með sósujafnara og smökkuð til. Borið fram með kartöflum og steiktu grænmeti.
Steikt grænmeti
- - 1 stór sæt kartafla
- - 2-3 stilkar sellerí
- - ¼ hluti sellerírót
- - 1 stór laukur
- - 1 rauð paprika
- - 1 bakki sveppir
Grænmetið þvegið og skorið í teninga, steikt upp úr olíu á pönnu, kryddað með 1 – 2 grænmetisteningum. Látið malla þar til grænmetið er orðið meyrt.
Eftirréttur
Sigurlaugarkaka með karamellusósu og ís. Fékk þessa hjá vinkonu minni og starfsfélaga Sigurlaugu Konráðsdóttur.
- 250 gr. döðlur
- 1 ½ tsk. matarsódi
- 180 gr. mjúkt smjör
- 7 ½ msk. sykur
- 3 egg
- 4 ½ dl. hveiti
- 1 tsk. vanilludropar
- 2 stk. lyftiduft
Döðlur settar í pott, vatn látið fljóta yfir og suðan látin koma upp. Látið standa í 3. mín. Matarsóta stráð yfir þannig að það freyði. Smjör og sykur þeytt saman þar til það verður létt og ljóst, eggjum bætt út í og þeytt mjög vel. Þurrefnum blandað saman og sett út í og hrært. Vatnið síað frá döðlunum og þær settar út í blönduna. A.m.k. 1 dl. af döðluvatninu settur út í – jafnvel meira. Deigið á að vera svipað þunnt og vöffludeig. Bakað í 30 – 40 mín við 180°c (í háu kringlóttu smelluformi).
- Karamellusósa
120 gr. smjör - 115 gr. púðursykur
- ½ tsk. vanillusykur
- ¼ rjómi
Soðið saman í 3 mín og hrært vel í á meðan.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.