Fyrirlestradagur á Skagaströnd

Súsanna Margrét með fjögur elstu börnin við heimili þeirra í Camp Knox-braggahverfinu. Súsanna Margrét Gestsdóttir flytur fyrirlestur um ömmu sína á fyrirlestrardegi á Skagaströnd á laugardaginn.
Súsanna Margrét með fjögur elstu börnin við heimili þeirra í Camp Knox-braggahverfinu. Súsanna Margrét Gestsdóttir flytur fyrirlestur um ömmu sína á fyrirlestrardegi á Skagaströnd á laugardaginn.

Laugardaginn 19. september kl. 13:30-16:30 verða haldnir fyrirlestrar í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í samvinnu við Rannsóknastofu í jafnréttisfræðum. Fyrirlestrarnir verða í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar, Gamla kaupfélagshúsinu, Einbúastíg 2.

Erindi halda:

13:30-14:00: Páll Sigurðsson, prófessor emeritus í lögum, flytur erindið Tveir norðlenskir lögskýrendur – Lögbókarskýringar Páls lögmanns Vídalíns og Björns Jónssonar, bónda og fræðimanns á Skarðsá

14:00-14:30: Nanna Þorbjörg Lárusdóttir sagnfræðingur talar um Góðtemplarastúkurnar og áhrif mótandi orðræðu

14:30-15:00: Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur heldur erindið Að halda friðinn. Um sáttanefndir í Húnavatnssýslu  og störf þeirra á 19. öld.

15:00-15:30: Umræður og heitt á könnunni

15:30-16:10: Súsanna Margrét Gestsdóttir sagnfræðingur segir frá ömmu sinni í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna: Það var sól þann dag –  um Súsönnu Margréti Gunnarsdóttur frá Norðurfirði á Ströndum (1926-2002).

16:10 : Umræður. Dagskrárlok eigi síðar en 16:30. Allir velkomnir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir