Frjálslyndi flokkurinn er eina svarið
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 2. sætið á lista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi. Það kom vart annað til greina vegna þess að stefnumál flokksins í sjávarútvegsmálum eru forsenda fyrir jákvæðri byggðaþróun í Norðvesturkjördæmi.
Það er ekki merkilegt, kerfið sem Frjálslyndi flokkurinn hefur barist gegn með oddi og egg þar sem ekkert af markmiðum kerfisins hefur náðst, s.s. svokölluð uppbygging þorskstofnsins. Kerfið hefur þvert á móti leitt atvinnugreinina í algjört skuldafen sem flestir málsmetandi menn eru sammála um að hafi verið upphafið að efnahagshruninu.
Kerfið hefur verið úrskurðað óréttlátt af sjálfri mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna og að því beri að breyta. Öll stjórnmálaöfl sem vilja láta taka sig alvarlega ættu að setja það á oddinn að endurskoða kerfið - strax. Í stað þess hefur fjórflokkurinn slegið þagnarmúr um raunverulegar breytingar og dregið lappirnar árum saman. Steingrímur J. hefur núna tekið við kefli Einars Kristins Guðfinnssonar og heldur óhikað áfram að brjóta mannréttindi á sjómönnum og svipta dreifðar byggðir réttinum til atvinnu.
Ólíkt öðrum stjórnmálaöflum sér Frjálslyndi flokkurinn augljós tækifæri við endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins og verða þá hinar dreifðu byggðir mótorinn við að endurreisa efnahagskerfið og byggja upp nýtt og öflugt Ísland.
Framtíðin er björt ef - og aðeins ef - við breytum þeim kerfum sem hafa orðið okkur fjötur um fót. Guðjón Arnar Kristjánsson býr yfir gríðarlegri þekkingu á sjávarútvegsmálum og það er bráðnauðsynlegt að hún verði nýtt til þess að vinda ofan af kerfinu og koma á meiri sátt og skynsemi við stjórn fiskveiða
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.