Stútfull dagskrá Hreyfiviku í Skagafirði

Frítt verður í sund í sundlaugunum í Skagafirði í Hreyfivikunni 21. - 27. september.
Frítt verður í sund í sundlaugunum í Skagafirði í Hreyfivikunni 21. - 27. september.

Dagana 21. - 27. september er svokölluð Hreyfivika UMFÍ  "MOVE WEEK" og verður ýmislegt í boði í Skagafirði. "MOVE WEEK" er Evrópsk herferð sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum reglulega.

Í tilefni af Hreyfiviku verður frítt í sundlaugarnar í Skagafirði, Golfklúbbur Sauðárkróks býður fólk velkomið á mánudag og þriðjudag að prófa golfherminn, frítt verður í tækjasal Þreksports fá mánudegi til föstudags, opnir æfingatímar hjá Körfuknattleiksdeild Tindastóls, sundkeppni milli sveitarfélaga og Knattspyrnudeild Tindastóls býður til foreldrafótbolta í íþróttahúsinu á Króknum föstudaginn 25. september.

dagskra hreyfiviku

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir