Forval Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninga 2009.

Kjörstjórn auglýsir eftir frambjóðendum í átta efstu sæti á framboðslista VG í Norðausturkjördæmi. Framboðsfrestur rennur út kl. 17:00 þann 16. febrúar 2009. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í tölvupósti á netfangið brell@simnet.is eða bréfleiðis í pósthólf 195, 602 Akureyri.

 

Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það einnig skriflega til kjörstjórnar fyrir 9. febrúar og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Allir þeir sem hafa áhuga á því að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuði, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvattir til að gefa kost á sér.

 

Kosningarétt hafi allir félagsmenn í VGNA miðað við 23. febrúar 2009. Kjörfundur verður haldinn 28. febrúar 2009 en kjördæmisráð Norðausturkjördæmis mun annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni sem og standa fyrir fundum.

 

Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir