Er lúmskt hræddur við Imma ananas – segir Guli bananinn

Guli bananinn. MYND: GG
Guli bananinn. MYND: GG

Guli bananinn er yfirlífvörður og hægri hönd Imma ananas en þeir verða mættir í Ávaxtakörfu Leikfélags Sauðárkróks þegar frumsýnt verður nú á þriðjudaginn. Hans helsta hlutverk er að þjálfa Garðar græna í lífvörðinn og marsera um alla körfuna og sjá til þess að Maja jarðaber haldi henni hreinni.

Er gaman að búa í Ávaxtakörfunni? – Já, það er mjög gaman.

Hver er sætust ? – Það myndi vera Eva appelsína.

Guli bananinn var fljótur að svara því að Immi ananas væri hans besti maður.

Hver er þinn uppáhalds ávöxtur? - Það mun vera Gulur banani.

Ertu hræddur við einhvern? - Já, ég er lúmskt hræddur við Imma.

Er erfitt að vera líffvörður? Það verður að viðurkennast að það getur verið erfitt að marsera svona mikið en annars ekkert svo erfitt.

Hvað þarf maður að gera til að vera góður líffvörður? - Það þarf að þekkja hægri og vinstri og kunna að bugta og beygja. Ekki er verra ef viðkomandi getur marserað í takt.  /gg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir