Málþing um Jóhönnu Jóhannesdóttur frá Svínavatni
Málþing um Jóhönnu Jóhannesdóttur frá Svínavatni verður haldið í Kvennaskólanum á Blönduósi sunndaginn 27. september og hefst kl. 14:00. Málþingsstjóri er Jóhanna E. Pálmadóttir, framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands.
Aðgangur er ókeypis en þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið textilsetur.residency@simnet.is fyrir 23. september 2015.
Dagskráin er eftirfarndi:
14:00 Setning
14:10 – 14:40 Dr. Áslaug Sverrisdóttir, sagnfræðingur: Ævi og störf Jóhönnu Jóhannesdóttur
14:40 – 15:10 Iðunn Vignisdóttir, bókmennta- og sagnfræðingur: Ágrip af sögu Kvennaskólans á Blönduósi
15:10 – 15:40 Sólborg Una Pálsdóttir, sagnfræðingur og héraðsskjalavörður: Hugleiðing um sjálfstæði, réttindabaráttu og vefstóla
15:40 – 16:00 Kaffihlé
16:00 – 17:00 Sýning á verkum Jóhönnu í Heimilisiðnaðarsafninu, leiðsögn um Kvennaskólann og Minjastofur Vina Kvennaskólans
17:00 Málþingi slitið
17:10 Ferð á æskuslóðir Jóhönnu á Svínavatni fyrir áhugasama (akstur á eigin vegum).
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.