Einar með nauma forystu

 Skessuhorn segir frá því að mikil spenna ríkir á talningarstað á Hótel Borgarnesi þar sem talið er í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í NV kjördæmi. Nú er búið að telja 2400 af 2700-2800 atkvæðum. Að sögn kjörstjórnar er afar lítill munur á atkvæðamagni efstu manna og getur því allt gerst á lokametrunum.

Ennþá leiðir þó Einar Kristinn Guðfinnsson í fyrsta sæti. Í öðru sæti er Ásbjörn Óttarsson í Snæfellsbæ en Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir á Tálknafirði er nú komin í þriðja sætið. Í fjórða sæti er Birna Lárusdóttir á Ísafirði, Bergþór Ólason á Akranesi er í fimmta og Sigurður Örn Ágústsson Austur Húnavatnssýslu í sjötta sæti.

Kjörstjórn í Borgarnesi gerir ráð fyrir að úrslit muni liggja fyrir um klukkan 17 í dag, en því getur hugsanlega seinkað eitthvað í ljósi þess hversu litlu munar í atkvæðamagni efstu manna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir