Ég hef ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn.

Karl V Mattíasson

Ákvörðun þessi helgast af því að skoðanir mínar og hugsjónir um sjávarútvegsmál á Íslandi eiga ríkan hljómgrunn í Frjálslynda flokknum.  Viðhorf mín á þessu sviði hafa ekki skipað þann sess innan Samfylkingarinnar sem ég hefði kosið á undanförnum tveimur árum, sem kom vel í ljós í niðurstöðum prófkjörs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir skömmu.
 
Ein meginástæða þess að ég hóf þátttöku í stjórnmálum er löngun mín til að stuðla að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins sem að mínu mati er með eindæmum ranglátt og felur í sér mikla mismunun.  Það hefur ekki síst komið í ljós eftir að efnahagskreppan skall á Íslandi í október á síðasta ári en ég er þeirrar skoðunar að fyrirkomulag þessa kerfis eigi stóran þátt í þeim vanda sem þjóðin glímir nú við. Því verður eitt  mikilvægasta verkefni í endurreisn landsins að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu á þann veg að arður þessarar dýrmætustu náttúruauðlindar landsins komi þjóðinni allri til góða. og skapi um leið fleiri atvinnutækifæri.
 
Frjálslyndi flokkurinn hefur ávallt sett þessi mál í öndvegi.  Ég hef því ákveðið að ganga til liðs við flokkinn og hlakka ég til að eiga gott samstarf við félaga hans.
 
Á þessum tímamótum vil ég nota tækifærið til að þakka kærum vinum mínum í Samfylkingunni  samstarfið á undanförnum árum og óska þeim alls hins besta.
 
Virðingarfyllst
 
Karl V. Matthíasson
Alþingismaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir