Dómarinn bað Donna afsökunar eftir 3-1 tap Tindastóls
Tindastóll gerði sér ferð á suðurlandið í gær þegar þær sóttu lið Selfoss heim í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna. Leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna.
Leikurinn hófst rólega en til tíðinda dró á 13. mínútu þegar að Laufey Harpa tók hornspyrnu fyrir Stólana. Melissa Alison Garcia var þá á réttum stað inni á markteig og skoraði af stuttu færi með skalla.
Leikmaður Selfoss, Katla María Þórðardóttir var stálheppinn á 24. mínútu þegar hún slapp við rautt spjald eftir glannalega tæklingu á Hönnuh Jane Cade út við hliðarlínu.
Í síðari hluta fyrri hálfleiks jókst sóknarþungi Selfyssinga og 36. mínútu átti áður nefnd Katla María lúmska fyrirgjöf inn á teig Tindastóls sem á undarlegan hátt endaði niðri í fjærhorninu og Selfoss komið yfir. Heimakonur komust síðan yfir stuttu síðar þegar Eva Lind Elíasdóttir skoraði með skalla eftir góða fyrirgjöf.
Heimaliðið fékk óbeina aukaspyrnu í byrjun síðari hálfleiks þegar að dómari leiksins taldi markvörð Stólana hafa tekið boltann upp eftir sendingu frá Maríu Dögg en það virtust allir á vellinum taka eftir því að boltinn hafði viðkomu í sóknarmanni Selfoss. Þetta reyndist dýrkeypt fyrir Tindastól því að Selfoss skoraði úr óbeinu spyrnunni og var þar á ferðinni enn á ný, Katla María.
Donni þjálfari Tindastóls hafði lítinn húmor fyrir þessu atviki og sagði við blaðamann mbl.is að það hefðu allir á vellinum heyrt þegar að boltinn fór í leikmann Selfoss.
,,Bekkurinn hjá Selfossi fór bara að hlæja þegar hann dæmdi. Dómarinn baðst afsökunar eftir leik en þetta eyðilagði mómentið fyrir okkur, við byrjuðum seinni hálfleikinn vel en þriðja mark Selfoss var algjört lykilatriði í leiknum.‘‘
Fátt markvert gerðist það sem eftir lifði leiks og annað tap Tindastóls í deildinni því staðreynd. Stelpurnar sitja á botni deildarinnar með tvö stig eftir fjóra leiki og eiga næst leik heimaleik gegn Stjörnunni næstkomandi þriðjudag.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.