Danskt hakkbuff með lauk

Í tilefni Bændadaga og góðu verði í nautahakki bjóðum við í dag upp á uppskrift að dönsku hakkabuffi með lauk.

600 gr nautahakk
1 tsk salt
1/2 tsk pipar
2 msk smjör/olía til steikingar
Kryddið hakkið og útbúið síðan meðalstór buff. Steikið síðan buffin á pönnu við meðalhita, fyrst í 1 mínútu á hvorri hlið og síðan 4 mínútur á hvorri hlið. Léttsteikið brauðsneiðar á pönnu í smjöri, leggið á disk og buffin ofan á. Því næst eru laukhringir steiktir og þeir settir ofan á ásamt feitinni sem af lauknum kemur.
Berið fram með rauðkáli, baunum og agúrkubitum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir