Byggðastofnun hefur lánað um hálfan milljarð króna til 90 fyrirtækja sem eru í meirihlutaeigu kvenna

Mynd tekin af heimasíðu Byggðastofnunar.
Mynd tekin af heimasíðu Byggðastofnunar.

Þann 19. júní var Kvennréttindadagurinn sem er hátíðs- og baráttudagur kvenna á Íslandi sem haldið hefur verið upp á frá því að konur fengu fullan kosningarétt til jafns á við karla. Á heimasíðu Byggðastofnununar var birt frétt í tilefni dagsins en þar segir að á síðustu tíu árum hefur stofnunin lánað um hálfan milljarð króna til 90 fyrirtækja sem eru í meirihlutaeigu kvenna í landsbyggðunum í gegnum sérstakan lánaflokk, “Lán til stuðnings atvinnureksturs kvenna”.

Lánaflokkurinn var upphaflega settur á sem tilraun til að efla þátttöku kvenna að stofnun og rekstri fyrirtækja því fáar konur höfðu sótt um lán hjá stofnuninni. Í árslok 2014 samþykkti stjórn Byggðastofnunar að setja 200 m.kr. í þann lánaflokk og var ákveðið að tvöfalda þá upphæð í byrjun árs 2017 þar sem ásóknin var það mikil. Algengast er að sótt sé um smærri lán eða um 5 milljóna króna sem eru þá án trygginga.

Lán til stuðnings atvinnureksturs kvenna hafa skapað fjölmörg störf í landsbyggðunum. Verkefnin eru fjölbreytt og má þar nefna lán til reksturs líkamsræktarstöðvar, saumastofa, verslana, ísgerðar, gestastofu, gistiheimila, gróðurhúsa, framleiðslu fæðubótarefna svo fátt eitt sé nefnt.

Lánin eru eingöngu veitt fyrirtækjum sem eru a.m.k. að þremur fjórðu hluta í eigu kvenna og undir stjórn kvenna. Krafa er um að verkefnin leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna. Þar sem um er að ræða frumkvöðlalán verður félagið/reksturinn að hafa verið starfræktur skemur en fimm ár. Nánari upplýsingar um lánaflokkinn má finna hér.

Byggðastofnun er aðili að InvestEU ábyrgðakerfi Evrópska Fjárfestingasjóðsins (European Investment fund). Lán til atvinnureksturs kvenna njóta því bakábyrgðar sjóðsins og gerir þannig Byggðastofnun kleift að bjóða áfram þann lánaflokk til eflingar atvinnulífs í landsbyggðunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir