Brauðtertuhlaðborð í Melsgili

MYND AF FACEBOOKSÍÐU VIÐBURÐAR
MYND AF FACEBOOKSÍÐU VIÐBURÐAR

Nú á að kveðja sumarið og fagna fyrsta vetrardegi með brauðtertuhlaðborði Kvenfélags Staðarhrepps fyrsta vetrardag laugardaginn 26.október nk. kl. 15.00 í Melsgili, Skagafirði.

Á boðstólnum verða gömlu góðu brauðterturnar í allskonar útfærslum. Margar tegundir sem fólk þekkir ásamt minna þekktum segir á Facebooksíðu viðburðar. 

Verð er 2500 kr fyrir 14 ára og eldri.
Kvenfélag Staðarhrepps vonast til þess að sjá sem flesta og allir velkomnir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir