Birna Lárusdóttir býður sig fram í 1.-2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 1.-2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor.
Nú eru viðsjárverðir tímar og staða þjóðarbúsins er afleit. Þeir sem eldri eru þekkja þrengingar af þessu tagi en kynslóðin mín á margt ólært.
Þjóðin deilir um orsakir hrunsins en ljóst er að margir bera þunga ábyrgð. Þar þurfa stjórnmálaöfl að axla sinn hlut og gangast við þeim mistökum sem gerð hafa verið á liðnum árum. Flokkurinn minn er þar engin undantekning. Ég hef starfað að stjórnmálum undir merkjum Sjálfstæðisflokksins í rúman áratug, fyrst og fremst á
sveitarstjórnarstiginu en einnig á landsvísu. Þótt margt hefði betur mátt fara hefur hugsjón sjálfstæðismanna um frelsi einstaklingsins til athafna verið grunnurinn að framgangi Íslands og bættum kjörum þjóðarinnar. Við erum vel menntuð og frjálslynd þjóð og grunnstoðir okkar eru sterkar. Við eigum að læra af reynslunni, jafnt því sem vel hefur gengið og því sem miður hefur farið. Endurreisnarstarfið er risavaxið. Ég vil taka þátt í þeirri uppbyggingu sem er framundan með reynslu mína í farteskinu og eindreginn vilja til að halda Íslandi í fremstu röð þjóða. Ég leita eftir stuðningi sjálfstæðismanna um allt kjördæmi til þeirra verka.
Ég er 43 ára gömul, fædd og uppalin í Reykjavík en hef verið búsett á Ísafirði með hléum í 17 ár. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund og BA prófi í fjölmiðlafræði frá University of Washington í Seattle í Bandaríkjunum. Starfaði um nokkurra ára skeið sem fréttamaður Ríkisútvarpsins á Ísafirði og fréttaritari Rúv í Noregi. Hef setið í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar frá 1998 og lengst af þeim tíma gegnt embætti forseta bæjarstjórnar. Er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi og skipa í dag 5. sæti listans.
Hef sinnt fjölmörgum nefndastörfum í gegnum tíðina, bæði í héraði og á landsvísu, og er t.a.m. formaður skólanefndar Menntaskólans á Ísafirði og varaformaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. Samhliða stjórnmálum hef ég starfað við ýmsa blaða- og lausamennsku. Maðurinn minn er Hallgrímur Kjartansson, læknir, og við eigum fjögur börn. Ef frekari upplýsinga er þörf vinsamlega hafið samband í síma 896-3367.
Með vinsemd,
Birna Lárusdóttir, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.